Lítil afköst

Síðustu dagar hafa ekki verið afkastamiklir hjá mér, þeim hefur verið eytt í allskyns vitleysu. Ég hef ekki afrekað neitt, ég hef varla neitt skrifað og lítið lesið. Þetta var svona seinna sumarfríið mitt, tveir dagar þar sem ég hafði ekkert að gera og gerði ekkert. Á morgun vinn ég í sjö klukkutíma, á sunnudaginn vinn ég fjóra klukkutíma en bara þrjá á mánudag og þriðjudag, þá byrjar skólinn. Þetta er alveg frábært.