Ég hef nokkrum sinnum lent í því að skrif mín á netinu hafa verið copy/paste’uð yfir á aðrar síður án þess að upprunans sé getið, jafnvel gefið í skyn að þjófurinn hafi skrifað þetta sjálfur. Svoleiðis angrar mig, mér þykir í raun ekkert voðalega slæmt að eitthvað sem ég skrifa sé afritað heldur finnst mér ömurlegt að fólkið skuli ekki geta þess hvaðan skrifin eru tekin eða eftir hvern þau eru. Pirr pirr.
Ég var semsagt að kvarta yfir því að notandi á Fólk.is skyldi hirða grein eftir mig af Vantrú án þess að minnast á hvaðan hún væri né hver væri höfundurinn.
Hve oft ætli þetta hafi gerst? Ég veit það ekki, í þau skipti sem ég hef rekist á síður sem innihalda skrif eftir mig þá hefur það verið af algerri tilviljun.
