Hvað er það sem Röskva vill en Vaka vill ekki?

Áðan þá fórum við Arndís saman í versta stofugang kosningabaráttunnar. Við vorum bara tvö vegna skipulagsklúðurs og flæðið í framsetningunni var ekkert. Ég sá Sigurstein Másson (fræga kallinn á lista Röskvu) í salnum og ákvað að spyrja retórískt hvort Geðhjálp væri klofin í hægri/vinstri pólitík. Hann var ósáttur við þetta og kom með komment sem sýndi að hann gat ekki séð að stúdentar eru í raun hagsmunahópur einsog sjúklingar.

Á leiðinni úr bíóinu þá spurði Arndís mig hvað það væri sem Röskva vildi sem Vaka vildi ekki. Eina svarið sem ég gat gefið var að Röskva vill ekki að Vaka nái meirihluta. Þetta er í raun allur ágreiningur stjórnmálaflokka stúdenta, þetta snýst bara um hvor fær meirihluta en ekki hvaða málefni eru mikilvæg. Breytum þessu heimskulega kerfi, kjósum Háskólalistann.