Ég var á deildarráðsfundi áðan og þegar ég kom út þá voru bráðhuggulegar dömur frá Vöku að útdeila kökum, mjólk og kaffi. Ég fékk mér sneið í tilefni þess að Vaka ákvað að halda upp á afmælisdaginn minn. Reyndar var það þannig að þar sem við Bragi sátum þarna saman í Odda að spjalla að upp kom sú spurning hvar allir strákarnir væru? Ekki er það þannig að hefðbundin kynjahlutverk séu að spila þarna inn í hverjir séu settir í hvaða verkefni? Hvar voru Vökupiltarnir?
Annars þá tókum við líka eftir því að Vaka var að nota rafmagn Háskólans til að halda tækjum sínum í gangi. Mig minnti endilega að það væri einhver regla sem bannaði slíkt í kosningabaráttunni…
