Mér þykir merkilegt hvernig spunameistarar Vöku hafa unnið að þessu LÍN/námsmannahreyfingamáli öllu saman. Þrátt fyrir að það sé algerlega augljóst að Vaka klúðraði þessu máli þá hafa þeir búið til auglýsingar og áróður sem gefa í skyn að málið sé til komið af því að Vaka sé svo góð í að berjast fyrir Háskólastúdenta. Þvílíkt rugl. Annars þá held ég að það væri alveg jafn gott að fá fulltrúa úr öðrum námsmannahreyfingum í þessa nefnd einsog að hafa Jarþrúði þarna, ekki treysti ég henni.
Í dag sagði Jarþrúður að sér hefði verið hótað af fulltrúum hinna hreyfinganna fyrr í vetur að þetta mál myndi koma upp í kosningabaráttunni, það þykir mér mjög ótrúverðugt. En ef þetta er satt þá hefði Jarþrúður átt að koma fram og segja frá því um leið og þetta gerðist, um leið og hótunin barst. Það að koma fram með þessa sögu eftir á er voðalega slappt.
