Hvernig fer þetta?

Allir spyrja mig hvernig kosningarnar fari og ég hef einfalt svar við því: Ég hef ekki grænan grun.

En ég held að staðan sé sirka svona:
Vaka 4-5
Röskva 3-4
H-listinn 1-2
A-listinn 0-1
Þrátt fyrir óskhyggju sumra þá er þessi maður sem Háskólalistinn hefur haft ekki í neinni hættu og ég er eiginlega frekar á því að við náum manni tvö líka inn.

Vaka hefur staðið sig afskaplega vel í áróðrinu og það hefði verið gaman ef stjórn þeirra hefði verið einsog þeir halda sjálfir fram en staðreyndin er sú að hjá Vöku eru orðin látin tala. Mitt gisk er fjórir menn.

Röskva hefur átt lélega kosningabaráttu, mörg klúður, atlögur þeirra að Alþýðulistanum hafa verið sérstaklega mislukkaðar. Ég er frekar á því að Röskva nái einungis þremur mönnum inn.

Alþýðulistinn er í raun óskrifað blað, ég held að þeir falli á því að utan Árnagarðs njóta þeir lítils fylgis og fáir hafa tekið eftir þeim. Ég efast um að þeir nái manni inn en ef svo verður þá er gulltryggt að Röskva nær bara þremur mönnum.

Spá mín er semsagt 4-3-2 en mín tilfinning fyrir þessu gæti verið kollvitlaus.