Símadónarnir Röskva og Vaka

Undanfarið hef ég heyrt ótal sögur af fólki sem hefur fengið símtöl frá fólki sem það þekkir lítið eða ekkert. Hverjir eru þessir símadónar? Þetta eru áróðursmaskínur Vöku og Röskvu. Þetta fólk er fengið til að hringja í gamla skólafélaga og kunningja kunningja sinna til að fá það til að kjósa rétt. Þetta er voðalegur átroðningur og ég fatta ekki af hverju fólk mótmælir þessu ekki almennt.

Það eru ófá atkvæði sem ég hef tryggt okkur með því að benda á að Háskólalistinn gerir ekki svona. Þegar hinir hringja, mundu eftir okkur.