Mér þætti gaman að vera betri námsmaður. Duglegri, ekki alltaf á síðustu stundu. Reyndar er langt síðan að ég hef þurft að fá frestun á nokkru verkefni en það er sjaldan sem ég er snemma á ferðinni. Þessi önn hefur farið í annað en hún átti að fara í (U-beygjan kom náttúrulega þegar Lalli hafði samband við mig og spurði hvort ég vildi ekki taka aktívan þátt í starfi Háskólalistans). Síðan gáfum við líka út blað. Og ég er víst skráður ritstjóri vefrits þó annar sé það núna í praxis. Síðan kom þessi utanlandsferð alveg óvart.
Það er margt sem mig langar að gera en ég ætti að bíða með sem flest þar til að prófin eru búin, það er rétt rúmur mánuður. Hvert fór tíminn? Síðasta helgi átti að fara í lærdóm en endaði í veikindum.
En ég kláraði eitt verkefni að mestu núna rétt áðan eftir að hafa pælt í því lengi. Ég ætti eiginlega að taka pælingartímann með þegar ég reikna hve duglegur ég er í náminu. Mikill tími fer í að spá í verkefnum áður en hafist er handa.
Ég á eina ritgerð eftir. Ég er búinn að ákveða hvað ég skrifa um, búinn að fá samþykki fyrir því og ég hef áhuga á efninu. Það er plús.
