Garðríkið

Við Eygló vorum fyrr í kvöld að ræða hvort við ættum að fara á Mótorhjóladagbækurnar eða Líf og dauða Peter Sellers. Við tókum þá eftir myndinni Garden State. Ég vissi af myndinni en vissi ekkert um hana nema að Zach Braff léki og leikstýrði. Við ákváðum að skella okkur á hana og sjáum ekki eftir því. Ég á væntanlega eftir að bæta henni í dvd-safnið. Kíkið á hana ef þið getið.