Óvænt kvöld

Við Eygló eyddum afmælinu öðruvísi en við bjuggumst við. Reyndar höfðum við ekkert plan fyrirfram. Hjördís spjallaði við mig um sexleytið og sagði mér að hún hefði óvænt aukamiða á Robert Plant. Ég var ágætlega spenntur fyrir því en vildi ekki skilja Eygló eftir eina á afmælinu. Við Hjördís ákváðum að reyna að redda miða fyrir Eygló líka. Hjördís byrjaði að hringja í vin sinn sem er að vinna fyrir Plant og hann gat auðveldlega bætt við miða fyrir Eygló.

Þetta var skemmtilegt kvöld. Ég hefði svosem kosið hefðbundnari útgáfur af gömlu lögunum, sérstaklega Immigrant Song. Nýju lögin voru líka ágæt þó maður sé vissulega aldrei neitt sérstaklega spenntur fyrir efni sem maður þekkir ekki.

Undarlegt fólk í kringum okkur, einn kall sem var alveg að fríka út.

Gaman samt.