Góður eftirmiðdagur

Þetta var voðalega góður eftirmiðdagur. Rölti út í aðalbyggingu og rakst á leiðinni á Véstein, hann var reyndar upptekinn við eitthvað annað en ég fékk hann með á doktorsvörnina.

Það er alltaf erfið ákvörðun hvar maður á að sitja á svona stöðum. Að vanda voru fáir framarlega, fæstir líta nógu stórt á sig til að setja sig í heiðurssæti. Ég sá síðan Marvin í þriðju röð og ákvað að setjast hjá honum. Tveim röðum fyrir framan okkur var familían hans Sverris.

Ég hef aldrei verið við doktorsvörn áður. Gunnar Karlsson og Vésteinn Ólason voru andmælendur. Þetta var áhugavert en reyndar missti ég þráðinn svona tvisvar sinnum vegna þess að þetta fór á fræðilegu brautirnar. Mér þótti reyndar sérstaklega gaman að fylgjast með Sverri þegar andmælendurnir voru að tala.

Í hléinu fór ég hálf óvart að spjalla við konu sem kom í ljós að var eldri systir Sverris. Heimurinn er reyndar það lítill að hún kenndi Eygló í grunnskóla á Vopnafirði. Ég hitti síðan fjölmarga mæta menn frammi, þar á meðal Valdimar þjóðfræðikennara og Jakob Háskólalistamann.

Eftir vörnina fórum við Jakob út á Stúdentaheimili að hitta Elías, sá var hress og kátur að vanda. Eftir að hafa lokað skrifstofunni fóru þeir félagar saman á Kjallarann en ég fór aftur út í Aðalbyggingu til að leita að týndu batteríi.

Fyrir utan hitti ég Ármann og Sverri, spjallaði aðeins við þá áður en ég fór inn að finna týndu rafhlöðuna. Hún hafði fundist og það endaði því vel. Ég fór aftur út og spjallaði við bræður á meðan einkabílstjórinn var að ná í bílinn. Mér var þá boðið í hóf í Norræna húsinu og þáði það.

Ég rölti heim og hitti Annas við Odda, spjallaði við hann örstutt. Fór síðan heim en fljótt aftur út í Norræna húsið. Þar spjallaði ég við ótalmarga en þó aðallega við Marvin. Á svæðinu voru ótalmargir vinnufélagar. Ármann hélt skemmtilega ræðu um bróður sinn. Ég var hins vegar ekki lengi þarna enda er ég að fara út að borða á eftir (þó borðaði ég aðeins í hófinu líka).