Fann nýtt Queendót!

Áðan rakst ég á Queentengtdót í Skífunni sem ég átti ekki fyrir. Það er svona geisladiskur með sögu Queen. Ég keypti diskinn að sjálfssögðu. Það er ekki oft sem ég finn eitthvað Queentengt sem ég á ekki fyrir. Reyndar eignaðist ég í gær plötu þar sem Freddie syngur, átti lögin reyndar fyrir en plötuna sjálfa ekki. Gaman að safna.