46664 bandið

Gaman að því að á sviðinu á 46664 tónleikunum eru núna allavega tveir úr Queenfjölskyldunni, bæði Jamie Moses og Spike Edney. Spike hefur verið tengdur Queen síðan 1986, spilaði í síðasta Queentúrnum og spilar líka með í Q+PR túrnum. Jamie er líka með í Q+PR og spilaði líka á Another World disknum hans Brian. Ég sá þá semsagt báða í Brixton um daginn.