Ég svaf bara vel í nótt og var hinn hressasti í morgun. Ég er afar glaður. Stór bunki af drasli á borðinu mínu í vinnunni og reyndar á gólfinu líka. Erfitt að vera ómissandi.
Ég er með apótekið með mér og tek skammtinn minn í hádeginu en annars ætti dagurinn bara að vera indæll. Maður kann ekki almennilega að meta það að vera heill heilsu nema rétt eftir veikindi.