Ekkert gott á Menningarnótt

Á Skjáeinum er „The Contender“ maraþon (sá náungann sem kálaði sér), á Sirkus er viðbjóðsömursþátturinn Miami Uncovered en á það er einhver mynd að byrja á RÚV sem gæti verið þolanleg. Menn eru ekki að nota bestu dagskrárliðina á Menningarnótt.

Ég er kominn úr Breiðholtinu. Þegar ég fór tók ég rafmagnið af hverfinu enda enginn á staðnum. Allavega var lítið um kveikt ljós í kring.

Þegar ég nálgaðist miðbæinn þá voru öll umferðarljósin blikkandi gulu, það var sérstaklega óþægilegt á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu (sem einnig kom við sögu í síðustu færslu). Á Bústaðavegi sá ég að bílar byrjuðu að keyra af götunni út á grasið. Ég hélt að það væri sjúkrabíll að koma fyrir aftan mig en síðan fattaði ég að flónin voru bara svona spennt fyrir flugeldunum. Jey.

Það voru engin stæði laus hérna nálægt allt fullt, ég lagði út í rassgati. Ég fatta ekki það að leggja í Eggertsgötu þegar maður er að fara niðrí bæ. Hefur þetta fólk heyrt um strætó?
Annars er ég ekki mikill Menningarnætursinni, allt í lagi að eyða tímanum í að undirbúa málningarvinnu.