Um helgina náði ég að mála tvær umferðir yfir alla íbúðina fyrir utan einn vegg og eyjuna í eldhúsinu, tók semsé bara eina umferð með dökku litunum.
Árný og Hjörvar komu á laugardaginn og hjálpuðu en Heiða og Hildur komu í gær. Gott að fá hjálp. Ég væri reyndar ekki kominn langt ef ég hefði ekki hjálp frá Árnýju og Hjörvari. Heiða fær síðan sérstakar þakkir fyrir að skríða eftir eldhúsgólfinu, mjög feginn að sleppa við það.
Það gengur svo vel hjá Eygló að hún kemur í kvöld tilbaka og getur því hjálpað með rest. Í kvöld klára ég að mála og síðan tökum við Eygló og hreinsum íbúðina. Þörf á. Síðan mun Eygló væntanlega bera olíu á parketið. Þegar það er komið þá er hægt að fara að leggja gólflista, giska að það verði á miðvikudagskvöld. Tvö kvöld í listum ættu að duga til þess að ná mikilvægustu veggjunum.