Olíuborinn og röraður

Skilst að ögrandi og villandi titlar séu tísku núna.

Kláraði að mála í gær, reyndar er smá hluti af eldhúseyjunni sem við málum væntanlega aftur en það er í góðu lagi. Gærkvöldið fór aðallega í að hreinsa gólfin. Eygló er núna væntanlega að skúra gólfin og síðan að olíubera þau. Annað kvöld er kominn tími á að leggja lista. Fer þá vonandi í kvöld að fá kennslu í að saga til gólflistana. Á morgun skrepp ég í Harðviðarval og fæ listana senda heim. Ég þarf að mæla hve mikið þetta er.

Við ætlum ekki endilega að klára listavinnuna fyrir flutninga en ég ætla að klára mikilvægustu veggina. Bak við ísskápinn, skenkinn og svo framvegis.

Rörin leiðinlegu verða leyst á einhvurn hátt. Tvær lausnir eru á borðinu og það kemur í ljós hvor verður notuð. Önnur verður kannski prufuð í kvöld en hin á morgun ef það gengur ekki. Fyrri lausnin er semsagt að prufa að saga af rörunum, það er greinilegt að það hefur verið gert á allavega einu stað þarna þannig að kannski að það sé besta lausnin. Ég reyni allavega.

Flutningur á föstudag, ég ákveð klukkan hvað á morgun. Tilkynni það öllum þá.