Grátandi barn og ömurlegur kall

Ég er allur að skána. Ég gaf konunni minni frí frá eldamennskunni og því skruppum við á American Style*. Fullt af konum að vinna þar. Á undan okkur var einhver leiðinlegur gamall kall að nöldra sem var eitthvað að fara á svig við einhverjar reglur. Ég hleraði það samt ekki almennilega. Við pöntuðum síðdegistilboðið okkar. Kallinn settist í næsta bás við okkur og stundaði það að hósta og smjatta til skiptis. Sá slímið fljúga útúr munninum á honum yfir á matinn.

Þegar á liður fer eitthvað barn í leikkróknum að gráta. Byrjar kallinn þá að segja mömmunni að hún ætti að leggja eitthvað annað fyrir sig. Ég efast um að hún hafi heyrt í honum. Kallinn endurtekur sig þó krakkinn sé hættur að gráta. Þegar mamman fer út með barnið þá endurtekur kallinn sig aftur og þá gríp ég fram í fyrir honum og segi honum að vera ekki að skipta sér af hlutum sem hann hefur ekki vit á. Við skiptumst á nokkrum skotum en ég nennti ekki að halda það út, móðir og barn voru farin þannig að málið var búið. Ég hefði getað drullað vel yfir hann en ég hef það almennt ekki að markmiði að niðurlægja gamla kalla þó þeir séu ömurlegir.

Ég er ekki stærsti aðdáandi grátandi barna en ef þú þolir ekki smá grát, og þetta var bara smá grátur, þá ættirðu ekki að fara út eða halda þig við ófjölskylduvæna staði.

*brandari