Flassbakk í eyrum

Í veislunni á laugardaginn fékk ég ákaft flassbakk til æsku minnar. Það var nefnilega svo að Una litla frænka var að fá eyrnabólgu og hélt fast fyrir eyrun með tárin í augunum. Eitt augnablik þá mundi ég nákvæmlega, fann það eiginlega, hvernig það var að vera með eyrnabólgu. Það var ekki gott.