og ég skrifa þar eitthvað,
með fingrinum,
sem skiptir öllu máli
Ég fór á MegaSukk áðan sem mér fannst megagaman. Sérstaklega þótti mér skemmtilegt að heyra Fatlafól með einhverjum nýjum texta, það var frábært því allir voru að reyna að syngja með. Annars var sama fólkið og ég var með fyrr um kvöldið flest enn á Stúdentakjallaranum. Ég byrjaði á að sitja á Ella en síðan sat ég með hann. Eftir það þá tóku Röskvuliðar sig til og sátu þrjú saman á tveimur stólum svo ég gæti fengið einn frá þeim. Ég þakka þeim fyrir það. En það voru semsagt margir þarna. Ölli til dæmis. Margir sátu á gólfinu. Ölli til dæmis.
Fyrst kom Hera á svið, það var óvænt ánægja, hafði ekki búist við því. Hún var góð og skemmtileg. Síðan kom MegaSukk sem ég hef þegar afgreitt hér að ofan. Elli keypti handa mér appelsín og lét örlítið af bjór með. Fyrsti sopinn var vondur en restin var hreint appelsín. Eftir tónleikana spunnust líflegar umræður um allt og ekkert. Það var ljóst að við þurftum að halda þessu áfram í eftirpartí. Þegar við vorum að fara þá tóku Röskvustúlkur sig til að draga Megas og helming Sukksins með í partíið. Og þeir komu.
Við vorum í eftirpartí með Megasi. Það gerðist hitt og þetta. Ég talaði sjálfur lítið við meistarann. Ég stóð aðallega í því að sussa á Tómasardætur sem voru að hakka niður grunlausa stúlku sem hafði gert þau mistök að minnast á pólitík. Ég sussaði reyndar aðallega á þær til þess að heyra betur í meistaranum. Kristín var líka óþolandi við Megas, alltaf að biðja hann að spila Fatlafól. Að lokum var Fatlafól tekið nokkrum sinnum, með upphaflegum texta, en Megas spilaði ekki á gítar. Nei, það var Eva sleggja. Megas kenndi henni þau grip sem hún hafði ekki enn náð og síðan spilaði hún Fatlafól á gítarnum hans. Nokkrum sinnum reyndar.
Stuttu eftir að Megas fór þá fórum við öll. Þegar Megas fer þá veit maður að ekki er hægt að gera neitt nema kannski að tala um Megas. Ég tók Ella, Evu og Kristínu með í bílnum sem Eygló hafði skilið eftir fyrir mig. Við komum við á BSÍ þar sem Ég, Eva og Elli fengum okkur mat. Kristín svaf hins vegar ljúflega á sumardekkinu sem var aftur í. Voðalega krúttleg reyndar. Öll enduðu þau væntanlega í góðu rúmi, þó væntanlega ekki saman.
Góður dagur fannst mér.
2025
Það er töluvert öðruvísi að hugsa til þessa kvölds núna. Aðallega er ég glaður að hafa verið skutlarinn. Annars upplýsti ég nýlega að þetta partí hafi farið fram á kaffistofu Félagsstofnunnar stúdenta (eða Bóksölunnar) og hvernig Ásgeir reddaði lyklum þannig að við gátum farið að taka til svo enginn lenti í vandræðum.
