Þjóðfræðipartíið er búið. Hið fyrsta árlega Þjóðbrókarjólaglöggvarpöbbkviss gekk ákaflega vel fyrir utan að frúin vann. Það átti ekki að gerast. En spurningarnar voru almennt góðar. Ég ákvað að gera Eiríki grikk með því að draga fram upptöku af Hárinu. Hann tók því með jafnaðargeði. Góður. Ég er annars með höfuðverk, líklega út af helvítis kertunum. Fundur í fyrramálið og síðan útdrátturinn. Lofa því. Næstum.
