Fyrsta prófið búið og það gekk bara ágætlega. Þetta var inngangur að þjóðfræði, fyndið að taka hann þegar maður er a undirbúa Mastersnámið. Heppinn með spurningar og skrifaði stutt og laggóð svör ólíkt sumum sem vissu allt um efnið og þurftu að skrifa það, allt. Ég beið að vanda með það að fara út þar til að einhver annar færi og var númer tvö úr stofunni. Hékk síðan og spjallaði heillengi, aðallega reyndar við Eggert sem átti leið framhjá. Eyddi meiri tíma í spjall heldur en próf. Sáttur.
