Langsótt og óraunhæft

Áðan skrapp ég á Alþjóðaskrifstofuna til að sjá hvernig ég get hugsanlega eytt þessari önn sem Terry vill senda mig út.  Ég þarf reyndar að skoða hitt og þetta í þessu sambandi en ég er að spá í að reyna við hið ómögulega og sækja um í Berkeley.  Ég tek fram að það er afar ólíklegt að ég komist að, bara einn kemst í hvert sinn.  Mig langar nú samt að prufa.

En ég ætla nú líka að skoða aðra raunhæfari kosti líka.