Það sem ég vissi fyrir…

Í morgun var hringt í mig og mér sagt að geisladrifið í tölvunni minni væri bilað.  Fyrir skondna tilviljun er þetta það nákvæmlega sama og ég sagði viðgerðarfólkinu þegar ég fór með tölvuna í viðgerð á mánudag.  Það getur víst tekið allt að hálfum mánuði að fá nýtt drif til landsins.  Frábært.