Snöggar stelpur?

Brilljant atriði í Kastljósi.  Það var verið að tala við „þú’st“ stelpur sem unnu Samfés söngvakeppnina.  Þegar viðtalinu lauk þá bauð Ragnhildur Steinunn þeim að fara á tónlistarsettið eða hvað sem hún kallaði það.  Þegar stelpurnar voru að standa á fætur þá byrjaði undirspilið.  Þá var klippt á stelpurnar þar sem þær voru búnar að setjast, koma sér vel fyrir og grípa hljóðnema á svona hálfri sekúndu….

Frábært að svona tónlistaratriði séu tekin upp fyrirfram, sérstaklega með einhverjum óvönum stelpum en það er óþarfi að gera þetta á svona tilgerðarlegan hátt.