Rót alls ills?

Annað kvöld mun stúdentafélagið Skeptíkus sýna heimildaþættina Root of all evil? í stofu 132 í Öskju.  Ég hef sent Agli Helgasyni boð á sýninguna enda gagnrýndi hann þættina á bloggsíðu sinni um daginn.  Hugsanlega mun hann skipta um skoðun þegar hann hefur séð þá.

Skeptíkus hefur leyfi Richard Dawkins sjálfs til að sýna þættina en við vonum að sjónvarpsstöðvar kveiki á því að þetta er nú vandað og áhugavert sjónvarpsefni.  Við erum augljóslega líka að vekja athygli á ráðstefnu trúleysingja sem verður haldin hér í sumar.  Eins og menn vita vonandi þá er Richard Dawkins einn aðal fyrirlesarinn en þó höfum við marga aðra góða og erum ennþá að bæta við á dagskránna.  Á vef SAMT er umfjöllun um ráðstefnuna.