Óli á hjóli

Við skruppum út áðan og við dældum lofti í hjólið hennar Eyglóar.  Reyndar held ég að það hafi verið of mikið en það er betra en of lítið, auðvelt að hleypa úr.  Ég býst við því að í vikunni prufi ég að hjóla í vinnuna.  Ég fæ í leiðinni kannski ráðleggingar frá manninum sem hjólar vestan úr bæ.