Án tónlistar…

Ég var snöggur að senda inn pöntun á nokkrum diskum hjá Dr. Gunna.  Þar voru allavega þrír sem ég hef reynt að redda mér í töluverðan tíma.  Ég bætti reyndar við nokkrum í viðbót eftir að Eygló hafði farið yfir listann.

Áðan átti ég mjög góða stund með sjálfum mér hlustandi á Merman með Emilíönu Torrini í baði.  Langt síðan ég hef gert það.

Þó að enginn vilji fara með mér á Zappa eða X-men (það stendur reyndar ennþá til boða) þá á ég góða vini og er þeim þakklátur.