Morgunblaðið og ég

Þetta er yfirlit mitt á Morgunblaðinu um aðsendar greinar síðustu ár.  Það vantar að vísu allavega eina þarna inn.  En hvað um það.  Greinin Leikskólar hunsa siðareglur var send til Moggans þann 7. nóvember, hún var birt 23. nóvember.  Hinn tvíræði máttur bænarinnar var sendur til Moggans 18. maí og eftir að hafa staðið í tölvupóstssamskiptum við Moggann þá fékkst hún loks birt 2. júní.  Minningargreinin um Anne Clyde varð ekki fyrir neinum töfum.

Trúleysi er ekki jaðarskoðun fjallar um það hve lítið fer fyrir trúleysingjum í íslensku samfélagi þrátt fyrir að þetta sé í raun stór hópur.  Greinin var send 18. júní og hún virðist ekki ennþá hafa birst.  Í raun má segja að hún hafi úrelst því hún átti að fylgja ráðstefnunni okkar.  Í dag sendi ég síðan svar við grein sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins um helgina.  Ég er spenntur að sjá hve lengi ég þarf að bíða núna.  Ég sendi reyndar athugasemd með greininni þar sem ég bað Moggann um skýr svör um hvort þeir ætluðu að birta hana eður ei.

Þess má geta að í janúar var skrifuð gagnrýnin grein í Morgunblaðið um trúarbragðabók Þórhalls Heimissonar prests.  Sú grein birtist á laugardegi en svargrein Þórhalls birtist á sunnudegi.  Miðað við að sunnudagsmogginn er yfirleitt kominn í dreifingu seinnipart laugardags þá verðum við að gera ráð fyrir að Þórhallur sé ógnarsnöggur að skrifa og þar að auki betur liðinn af ritstjórn Morgunblaðsins en ég.  Ekki sama séra Þórhallur og litli ég.