Queentengt nöldur…

Eygló var að segja mér að einhver útvarpsmaður á Bylgjunni, væntanlega Rúnar Róbertsson, hefði verið að segja að Freddie Mercury hefði alltaf búið einn.  Þetta var inngangur hans að laginu It’s a hard life.  Nú veit ég ekki hvaðan hann fékk þessar upplýsingar en þær eru augljóslega bandvitlausar.  Freddie var að minnsta kosti tvisvar, hugsanlega þrisvar í sambúð.  Hann bjó í nokkur ár með Mary Austin áður en hann kom útúr skápnum og síðustu árin (líklega frá 1985) þá bjó hann með Jim Hutton.