Það er svoltið notalegt að geta einbeitt sér að BA-verkefninu næstu vikur. Ekkert annað að hugsa um, nema augljóslega fyrstu tímarnir í MA-náminu. En ég ætti að vera vel staddur eftir næstu viku, ekkert að gera annað en að hanga á Bókhlöðunni og vinna í verkefninu.
Annars var kvöldið notalegt. Fórum á American Style til að fagna vinnulokum. Horfðum síðan á I love you to Death sem ég keypti á dvd í vikunni. Eygló var fullþreytt og fylgdist líklega ekki vel með. Hún sofnaði alveg rétt eftir að myndinni lauk en hrökk upp þegar ég var byrjaður að horfa á Veronica Mars. Eygló var ekki alveg viss um hvernig þátturinn tengdist söguþræði myndarinnar.
Núna er Benny & Joon að klárast á Stöð 2…