Lesið og hóstað

Enn held ég vöku fyrir sjálfum mér með hósti.  Pirrandi.  Hugsanlega myndi ég þó ná mér fyrr ef ég myndi slappa eitthvað af. Ég náði þó allavega að klára lesefnið í rannsóknunum um sexleytið í nótt.  Ein greinin var svo tyrfin að ég áttaði mig nokkrum sinnum á því að ég væri ekki að ná neinu samhengi í henni.  Merkilega svipað því að lesa eitthvað úr post-modern generator.  En síðan las ég aðra grein eftir sama höfund sem var mun skiljanlegri þannig að hugsanlega var þýðingin eitthvað slök í fyrri greininni.

Mig dreymdi keilu áðan þegar ég loksins náði að sofna.