Af hverju er ég ennþá vakandi klukkan þrjú að nóttu? Ég er náttúrulega að horfa á Glæpamann í tjaldi. Ritgerðin er nær tilbúin, bara heimildaskráin eftir. Annars þá er þriðjudagurinn síðasti upptekni dagurinn minn fyrir próf. Eftir það get ég bara farið að hugsa um prófaplön og slíkt. Notalegt. Á þriðjudagskvöldið þá á ég annars að vera að hitta Háskólalistafólk og fólkið í Rannsóknunum. Sem betur fer þarf ég ekki að vera á tveimur stöðum í einu þar sem þessir hittingar fara fram á sama stað. Get hoppað á milli.