Jæja, síðasti langi þriðjudagurinn liðinn. Byrjað á prófi, síðan smá hlé, síðan Tolkien og beint á eftir því í Rannsóknirnar. Þar sem stefnan var á að hitta Rannsóknaliðið aftur í kvöld þá fór ég ekki heim heldur fékk að hanga hjá Dagbjörtu þar til við fórum á Sólon til að borða og bíða eftir hinum. Við fengum ekki sæti í reyklausa hlutanum. Öll borðin þar voru upptekin en fullt laust af reykborðum, fáránlegt kerfi. Við settumst því á ysta reykborðið og störðum á reyklausa svæðið. Um leið og fólk þar stóð á fætur hljóp ég með diskinn á borðið. Fólkið fór að dragast inn uppúr átta og allir mættu að lokum. Nema að Terry kom ekki enda sendi ég honum skilaboðin svo seint. Ég var lítið á Háskólalistafundinum og leyfði mér yngra fólki að plotta. Eygló sótti mig síðan og skutlaði Júlíönu og Dagbjörtu heim.
Annars var Terry í Tolkien að tala um skort á kynlífi í bókunum og hvort það væri í raun galli. Hann spurði hvort við vildum fá ástarsenur með Galadriel. Ég gaf í skyn með höfuðhreyfingum að það væri nú ekkert svo slæm hugmynd… Terry sagði að ég væri væntanlega einn um það.
gott að vita að ég sé orðinn yngri en þú …
Þú komst seinna en ég inn í Háskólalistann er meiningin. Munar svo sem ekki miklu.