Plönin breytast og mennirnir með

Ég verð á Akureyri um jólin.  Fæ að fljóta með tengdafjölskyldu Hafdísar í aðfangadagskvöldmat en síðan er planið að fara til Gylfa frænda og fjölskyldu.  Er reyndar ekki búinn að ákveða hvenær ég fer norður né hvenær ég sný aftur.  En það verður áhugavert að vera aftur á Akureyri eftir öll þessi ár.  Áramótin eru óráðin en verða að öllum líkindum í Reykjavík.  Ef einhver hefur tilboð þá eru þau vel þegin.