Einhvern veginn grunar mig að þetta auðkennislykilsdæmi eigi eftir að skapa endalaus vandamál og vesen. Að maður þurfi að hafa þetta drasl hjá sér í hvert skipti sem maður ætlar að nota heimabankann sinn er ákaflega óspennandi tilhugsun. Annað hvort verður maður að hafa þetta alltaf á sér og opna þannig möguleikann á að týna þessu eða þá geymir maður þetta heima og getur ekki notað heimabankann sinn nema þar. Bögg.