Ég var að lenda í svoltið skrýtnu. Það byrjaði lag með Britney Spears í sjónvarpinu og ég fann fyrir svona notalegri tilfinningu. Ég var ekki að skilja hvers vegna lagið vakti hjá mér vellíðan en þá mundi ég það allt í einu. Að sjálfssögðu er mér sama um Britney. Hausinn á mér var að tengja þetta við það þegar Telma söng þetta í Idolinu. Mér leið töluvert betur að fatta þetta. Lagið var nefnilega óttalega fallegt þegar Telma söng það. Britney á augljóslega ekkert í hana.
