Þessi dagur var líka góður. Ég þurfti reyndar að byrja á að ganga í niður í Mjódd í skítakulda og taka leið sem ég tek aldrei þegar ég fer í skólann (vagnarnir fara seint af stað á sunnudögum). Í gær var ískalt í kennslustofunni og það var aftur kalt í morgun. Ég tók að mér að hringja í húsvörð sem sagði að öllum líkindum væri ekkert við þessu að gera en reyndar kom hann síðan á staðinn og sagði okkur af hafa hurðina opna. Frekar ólógískt en það var reyndar mun hlýrra frammi. En þetta dugði skammt og við sátum næstum öll í yfirhöfnum okkar í allan dag.
Í hádeginu fórum við Sigrún Hanna, Röskvufólið ásamt kennaranum í Kaffitár í Þjóðminjasafninu og snörluðum þar. Voðalega gaman að spjalla við hana.
Í kvöld fórum við Eygló í kvöldmat og spilamennsku til Árnýjar og Hjörvars. Við kynntum fyrir þeim “Pass the Pigs” og höfðu þau ákaflega gaman af. Fjör bara.