Ég skoraði áhugaverða körfu í dag. Við Sigrún vorum að dunda okkur í íþróttasalnum, hefðum verið að spila bandí ef mæting hefði verið betri. Ég dúndraði í fótboltann sem fór af veggnum í loftið og þaðan ofan í körfuna. Ég sá fyrir mér sig í Americas Funniest Home videos ef við hefðum tekið þetta upp. En nei. Ég hitti bara Bob Saget við annað tækifæri.