Góðar fréttir hrúgast inn. Fyrir viku beið ég eftir svörum varðandi þrjú mál sem varða framtíðina. Núna er ég búinn að fá já við tveimur og í dag fékk ég grænt ljóst á hið þriðja. Ég er semsagt að fara að ganga frá endanlegri umsókn til Cork en ég var áður búinn að ganga frá Erasmus umsókn þangað. Það eru allar líkur á að ég fái inn og ég ætla að drífa mig í að ganga frá þessu. Ég þarf samt að fara að spjalla við fólk sem hefur áður farið þangað í skiptinámi og spyrja það um húsnæðismál, ég veit nefnilega ekkert um þau.