Mikið væri gott ef jörðin myndi gleypa Jón Magnússon. Hann er það versta sem kom fyrir þessa kosningabaráttu. Hvernig gat Frjálslyndi flokkurinn verið svona vitlaus að taka þetta fífl inn?
Íslandshreyfingin er klúður kosningabaráttunnar. Sjálfur er ég viss um að þeir hefðu nú farið langleiðina með að bjarga sér upp í að ná inn manni með því að hlusta á Svan og setja aðskilnað ríkis og kirkju á stefnuskránna. Í staðinn settu þeir inn skottulækningar. Bjánar.
Þegar þetta er skrifað þá er stjórnin fallin með einum manni. Það er ekki nógu gott þegar fyrrnefnt fífl er sá maður. Einn maður í viðbót og þá er þetta gerlegt.
Einhverjir tala um D+V en ég sé bara ekki hvað sú stjórn ætti að gera. Ganga ekki í ESB? Líklega næstversti kosturinn í stöðunni. Versti er D+S, það væri í raun bara hægri stjórn. Ég er líklega einn af fáum sem telur að V+S+B sé ekkert hræðilegur kostur.
Einn mann í viðbót og þá er V+S+F góður möguleiki.
Annars eru góðu fréttirnar af Birni Bjarnasyni og Árna Johnsen. Megi þeir fara norður og niður.