Kvikasilfur og sparperur

Um daginn talaði ég um sparperur. Ég minntist á að ég hefði komist að því að það væri kvikasilfur í perunum. Ég hafði samband við Sorpu og spurði hvers vegna ekkert væri minnst á sparperur á heimasíðu þeirra. Svarið var að kvikasilfrið væri undir viðmiðunarmörkum þannig að það þyrfti ekki að skila þeim inn. Ég stefni nú samt á að gera það, við erum hvorteðer að flokka og skila þessu heimili þannig að það er ekki mikil aukaleg fyrirhöfn.