Endanlegt samþykki

Þar sem ég lenti svona illa í því með Nýfundnalandsumsóknina þá hef ég farið varlega í að leyfa mér að hlakka til að fara til Cork. En ég var að fá samþykki í kúrsana í þjóðfræðideildinni þarna, aðalvafinn var hvort að þeir yrðu kenndir. Reyndar er smávandamál með það að búið að breyta kúrsunum og ég er skráður í einhverja ritgerð. Líklega er bara búið að breyta númerunum. En ég er feginn og glaður.

Semsagt, rétt eftir miðjan næsta mánuð fer ég út til Írlands og verð þar í um þrjá mánuði.