Ópródúktívskir dagar…

Mér finnst ég vera ópródúktívur þessa daganna. Ég ætti að vera að koma ýmsu í verk en ekkert gerist. Reyndar held ég að ég fari að snúa því við núna. Fór til dæmis að versla í dag. Og í fyrradag sendi ég loksins ritgerðarefnistillögu til Terry fyrir írska kúrsinn sem ég kláraði í lok ágúst.

Hugsanlega fer ég útúr bænum um næstu helgi. Ég var reyndar búinn að vera að reyna að fá flug fyrr heim til Íslands (þar sem það hefði ekki áhrif á neina kúrsa) en það gekk ekki. Sjáum til. Vakna snemma á morgun til að fara í bíó og væntanlega verður spilakvöld líka.