Stansted í sex klukkutíma

Ég fæ að eyða rúmum sex tímum á Stansted í dag, það er ekki gefandi. Sat í tvo klukkutíma á ítalska staðnum og las í The Toyminator eftir Robert Rankin. Tjékkaði mig síðan inn og losaði mig við aðaltöskuna.

Núna er ég að reyna að drepa tímann á netinu. Ég hlakka til að fleygja mér í rúmið þegar ég kem heim í Arcadia Hall. Voðalega er ég þreyttur.