Kalt eða ekki kalt

Það batnaði veðrið um helgina og nú er bara hið indælasta haustveður eins og hefur verið síðan í haust. Þegar ég var að rölta til baka af umferðarmiðstöðinni áðan eftir að hafa farið með Eygló út á flugvöll hitti ég Rapha. Hann spurði mig hvort mér væri ekki kalt í mínum þunna óupprennda jakka. Sjálfur var hann í úlpu sem var rennd upp í topp. Ég svaraði að mér væri nú ekkert kalt en mér hefði verið kalt í síðustu viku. Rapha er frá El Salvador.