Listaleynd Röskvu

Það verður áhugavert að fylgjast með Stúdentaráðskosningunum af hliðarlínunni. Bæði Röskva og Vaka hafa víst kynnt lista sína en fyrrnefndi klúbburinn er að reyna að halda sínum leyndum.  Ég sem þarf að ákveða hvort og hvorn listann ég kýs. Augljóslega er munurinn enginn á stefnunni þannig að maður verður að meta fólkið.

Reyndar hef ég heyrt að allavega eitt annað framboð hafi verið í undirbúningi og það verður gaman að heyra hvernig það gengur.