Prósentureikningur

Varðandi myndband hljómsveitarinnar Mercedes Club sagði EGillz:

„Það er ekki útilokað að við sleppum fötunum bara alveg. Við höfum svosem enga ástæðu til þess að vera í fötum í myndbandinu, enda er samanlögð fituprósenta hljómsveitarinnar undir 30%! Engin ástæða til að klæðast,“

Nú er ég ekki sérfræðingur um fitumælingar en ég er örlítið betri í prósentureikningi og mig grunar að hér hafi gáfumennið farið svolítið óhefðbundnar leiðir í þeim efnum.