Húsþrælar

Það þótti ekki falleg einkunn þegar Harry Belafonte kallaði Colin Powell húsþræl. Ástæðan er sú að húsþrælar voru lítils metnir af öðrum þrælum. Með því að vera sérstaklega þjónustulundaðir við meistara sína fengu þeir að vera inn í híbýlum þeirra og þjóna þeim. Fengu gömul föt af þeim og héldu að þeir væru þess vegna meira virði. En í raun voru þeir bara þægari. Það er ekkert virðingarvert við það. Húsbændurnir voru líka alveg líklegir til þess að losa sig við þá þegar þeir komu ekki lengur að gagni. Þeir áttu því afar fáa vinir, þessir þægu húsþrælar.