Við trúðum blint

Söng Bubbi þetta í dag?

Ó, segðu mér faðir hvað fengum við
í erfðir frá þér og þínum.

Græna reiti, stálgrá hús
ábyrgð sem hæfir svínum.

Þú lagðir þá skyldu á herðar oss
að bylta, berjast og breytast.

Við skilnaðinn gafstu votan koss
gamall, farinn að þreytast.

Við trúðum blint á vísdóm þinn
allt var reynt til þrautar.

Allir áttu að hugsa um garðinn sinn
hélstu að enginn mundi hlaupa.

Á hlaupum við leituðum sannleikans
sem reyndist vinafár.

Við leituðum í dópi, stigum djöfladans
ó, ég man ekki hversu mörg ár.

Ég veit það núna, faðir minn
eftir öll þessi ár.

Sannleikurinn þinn er ekki sannleikurinn minn
þó stundum geti hann verið sár
Við trúðum blint á vísdóm þinn
allt var reynt til þrautar.

Allir áttu að hugsa um garðinn sinn
hélstu að enginn mundi hlaupa.

Ég held að margir geti sungið með. Ekki ég, ég trúði aldrei á þessa peninga.